Tvær líkamsárásir og eitt innbrot

mbl.is/Júlíus

Skemmtanahald Reykvíkinga fór að langmestu leyti vel fram í nótt, að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Tvær líkamsárásir voru þó kærðar, en hvorug þeirra var alvarleg. Átta manns fengu að gista fangageymslur vegna óláta eða ölvunarástands.

Þá er einn maður í haldi vegna gruns um innbrot í austurborginni seint í gærkvöldi. Maðurinn var handtekinn inni í íbúðarhúsi þar sem hann átti ekki sjálfur heima. Íbúðin sem hann var handtekinn í var mannlaus þegar hann fór þangað inn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert