Ók á brúarstólpa á flótta frá lögreglu

Alvarlegt umferðarslys varð nú fyrir stundu á mótum Breiðholtsbrautar og Reykjanesbrautar í Reykjavík.  Stór jeppabifreið keyrði á brúarstólpa og er ökumaðurinn, sem var einn í bílnum, nokkuð slasaður en ekki er enn vitað hversu alvarleg meiðslin eru.

Lögregla hafði veitt manninum eftirför sunnan frá Hafnarfirði þar sem jeppabifreiðin hafði átt hlut í árekstri skömmu áður suður með sjó en stungið af frá vettvangi. Að sögn lögreglu sinnti maðurinn ekki stöðvunarmerkjum heldur reyndi að komast undan en missti á endanum stjórn á bílnum með þeim afleiðingum að hann endaði á brúarstólpa á talsverðri ferð.

Lögregla og sjúkrabíll eru á staðnum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert