Hraðaeftirlit á ómerktum bíl skilar sér

Hraðaksturinn átti sér stað í grennd við leikskóla
Hraðaksturinn átti sér stað í grennd við leikskóla mbl.is/Sverrir

Fjórir ökumenn voru staðnir að hraðakstri á Hjallabraut í Hafnarfirði í dag en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Að sögn lögreglu hefur reynslan sýnt að notkun slíks búnaðar gefi gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldi leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar í dag eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti sem lögregla stundar nú í og við íbúðargötur á höfuðborgarsvæðinu.

Brot ökumanna fjögurra voru sunnan Skjólvangs á Hjallabraut, en á þessum stað er leikskóli við götuna. Fylgst var með ökutækjum, fyrir hádegi, sem var ekið í suðurrátt en þarna er 50 km hámarkshraði. Á einni klukkustund fóru 30 ökutæki þessa akstursleið og því óku 13% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Sá sem hraðast ók mældist á 63.

Lögreglan var einnig við hraðamælingar á Drekavöllum í Hafnarfirði eftir hádegi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið í austurátt, við Hraunvallaskóla, en þarna er 30 km hámarkshraði. Á einni klukkustund fóru 14 ökutæki þessa akstursleið en þeim var öllum ekið á löglegum hraða.

Fyrir nákvæmlega ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sömu stöðum en þá óku hlutfallslega mun fleiri of hratt eða yfir afskiptahraða á Hjallabraut. Líkt og í fyrra virðast ákaflega löghlýðnir ökumenn fara um Drekavelli en þá voru sömuleiðis allir á löglegum hraða.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert