Samþykkt að veita upplýsingar um skattaskjól

Guðmundur Rúnar Guðmundsson

Nýverið var gengið frá samkomulagi milli aðildarríkja norrænu ráðherranefndarinnar og Cayman-eyja um undirritun upplýsingaskiptasamnings. Samningurinn er liður í sameiginlegri viðleitni samningsaðilanna til að stöðva skattaflótta. Samningurinn veitir skattyfirvöldum aðgang að upplýsingum um innistæður og tekjur skattskyldra aðila og getur orðið til þess að leiða í ljós eignir og tekjur sem ekki hafa verið gefnar upp í heimalandinu.

Næstu vikur munu samningsaðilar ganga frá nauðsynlegum atriðum heima fyrir áður en upplýsingaskiptasamningurinn verður undirritaður þann 1. apríl nk. í Stokkhólmi.

Samningurinn er liður í umfangsmiklu verkefni á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar en áður hafa Norðurlöndin gert sambærilega samninga við Mön, Jersey og Guernsey. Þá eru samningsviðræður eru langt komnar m.a. við Arúba, Bermúda, Bresku Jómfrúareyjarnar og Hollensku Antillaeyjarnar, að því er segir í tilkynningu.

Samningurinn við Norðurlöndin er liður í því að Cayman-eyjar hrindi í framkvæmd stefnu Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) um gegnsæi og upplýsingaskipti í skattamálum en stjórnvöld á Cayman hafa, með sérstöku samkomulagi við OECD, skuldbundið sig til að mæta kröfum stofnunarinnar á þessu sviði. Cayman-eyjar hafa á undanförnum árum tekið skref í þessa átt og undirrituðu árið 2001 upplýsingaskiptasamning við Bandaríki Norður-Ameríku sem kom til framkvæmda 1. janúar 2004. Auk þess eru Cayman-eyjar aðilar að sparnaðartilskipum ESB og að miðla sjálfvirkt bankaupplýsingum í samræmi við hana.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert