Lögreglumaður féll af vélhjóli

Sjúkrabílar á vettvangi á Laugavegi í dag.
Sjúkrabílar á vettvangi á Laugavegi í dag. mynd/Geir Gunnlaugsson

Lögreglumaður féll af vélhjóli við gatnamót Kringlumýrarbrautar og Laugavegar um 17:45 í dag. Að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu er lögreglumaðurinn óbrotinn en lemstraður eftir fallið. Hann var fluttur á slysadeild.

Orsök slyssins liggja ekki fyrir, en lögreglu- og sjúkraflutningamenn fjölmenntu á staðinn. Einhver truflun varð á umferð en aðgerðir á vettvangi stóðu yfir í um 45 mínútur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert