Réttindi sjóðfélaga LSV skerðast ekki

Lífeyrissjóður Vestmannaeyja mun ekki skerða réttindi eða lífeyrisgreiðslur til sjóðfélaga. Framkvæmdastjóri sjóðsins segir erfitt ár að baki, en staðan sé vel innan marka. Heildarskuldbindingar sjóðsins eru 3,2% umfram hreina eign í árslok 2008 og er tryggingafræðileg staða hans því vel innan þeirra 10% marka sem lög setja.

Í tilkynningu framkvæmdastjóra sjóðsins segir að meðaltal hreinnar raunávöxtunar sjóðsins sl. 5 ár sé 4,69% og meðaltal síðustu 10 ár 4,29%.

Hrein eign Lífeyrissjóðs Vestmannaeyja var í árslok 2008 um 24,4 milljarðar króna og óx um 990 milljónir á árinu eða um 4,24%.  Vegna falls viðskiptabankanna og fjármálakreppu voru skuldabréf fjármálafyrirtækja og nokkurra annarra fyrirtækja færð niður um 1,2 milljarða til að mæta fyrirsjáanlegum töpum. Varúðarniðurfærslurnar nema um 5,0% af hreinni eign í árslok. Eignir sjóðsins í hlutabréfum bankanna urðu verðlausar við hrun þeirra í október 2008, en hlutabréfin voru metin á markaðsgengi í lok september á um 680 milljónir króna.

Óvissa ríkir um uppgjör gjaldmiðlavarnasamninga sem sjóðurinn gerði á árinu. Staða þeirra er metin í ársreikningi á gengi krónunnar eins og það var við bankahrunið í október sl. Bankarnir urðu strax eftir fall þeirra ófærir um að sinna þessum gjaldmiðlasamningum en gjalddagar þeirra voru nálægt síðustu áramótum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert