Lýst eftir 14 ára stúlku

Karen Lind Sigurpálsdóttir.
Karen Lind Sigurpálsdóttir.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar að  Karenu Lind Sigurpálsdóttur, 14 ára,  sem fór frá heimili sínu að morgni 31. mars. Karen er grannvaxin, skolhærð með meðalsítt, liðað hár og blá augu. Hún fór af heimili sínu í svartri úlpu með loðkraga. Frekari lýsing á fatnaði er ekki til staðar.

Þeir sem geta veitt upplýsingar um ferðir Karenar vinsamlegast hringið í síma 444-1100.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert