Utanríkisráðherra áhyggjufullur

Össur Skarphéðinsson
Össur Skarphéðinsson Valdís Þórðardóttir

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, lýsir alvarlegum áhyggjum yfir því að stjórnvöld Norður-Kóreu hafi skotið eldflaug á loft 5. apríl sl. þrátt fyrir ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna, þar sem ráðið krefst þess að Norður-Kórea geri ekki tilraunir með langdrægar skotflaugar.

Í tilkynningu frá ráðherranum segir, að hann taki undir hvatningu alþjóðasamfélagsins um að Norður-Kórea virði alþjóðlegar skuldbindingar sínar og eigi viðræður við önnur ríki til þess að endurbyggja traust í öryggismálum í Norðaustur-Asíu. 

Össur vonast  til að viðræður Sex-ríkja hópsins hefjist á ný sem fyrst, en þær miða að því að finna friðsamlega lausn er varðar kjarnorkuáætlun Norður-Kóreu. Auk Norður-Kóreu eiga sæti í hópnum; Suður-Kórea, Bandaríkin, Kína, Japan og Rússland.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert