Verður yfirheyrður seinna í dag
Litlu munaði að stórslys yrði þegar ökuníðingurinn reyndi að stinga lögreglu af í gærkvöldi. mbl.is/Július
Maðurinn sem flúði undan lögreglu á bifreið sinni í gærkvöldi, en var að lokum stöðvaður á leið inn í íbúahverfi á Víkurvegi, verður yfirheyrður seinna í dag en hann er nú í fangageymslum lögreglu. Mikil hætta stafaði af ökulagi mannsins en hann hlýddi ekki stöðvunarmerkjum lögreglu.
Hann ók á allt að 180 kílómetra hraða á klukkustund, þegar mest var, og ógnaði öðrum sem voru í umferðinni með aksturslagi sínu.
Eftirförin hófst á Bústaðarvegi við Grímsbæ, þegar lögreglan stöðvaði bifreiðina og hafði afskipti af ökumanni hennar, manni á þrítugsaldri. Hann sýndi mótþróa, setti aðeins rifu á bílrúðuna og neitaði að tala við lögreglu og brunaði svo af stað út Bústaðarveg niður á Reykjanesbraut.
Þar fer maðurinn yfir á rauðu ljósi og hunsar alla umferð, ekur utan í lögreglubifreið, yfir umferðareyju og snýr við. Á leiðinni aftur út Reykjanesbrautina í átt að Miklubraut ekur hann utan í tvær lögreglubifreiðar til viðbótar og bíl vegfaranda á ferð. Ók hann þá sem leið lá upp Ártúnsbrekkuna á 180 kílómetra hraða en hjá hringtorginu við Korpu gerði lögregla fyrstu tilraun til að þvinga hann út af veginum án árangurs.
Lögreglan taldi mikla hættu stafa af manninum og ekki um annað að ræða en að stöðva för hans enda munaði margsinnis aðeins hársbreidd að stórslys yrði. Þegar tókst að þvinga hann út af veginum við Víkurveg stefndi hann inn í íbúðahverfi og ekki fór á milli mála að hann hugðist ekki stöðva bílinn undir neinum kringumstæðum.
Grunur leikur á því að hann hafi verið undir áhrifum örvandi fíkniefna.
Bloggað um fréttina
-
Birgir Þór Bragason Setjum fjarstýrða ádrepara í bíl. -
Þórir Kjartansson Er þetta rétt að farið? -
Páll Höskuldsson BMW kynslóðin -
Haraldur Haraldsson Verður yfirheyrður seinna í dag/Ber að takka hart á þessum ...
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 6. apríl 2009, Innlent Stefndi inn í íbúðahverfi
- Þriðjudagur, 21. júlí 2009, Innlent Ökuníðingurinn lék sama leik fyrir tveimur árum
- Mánudagur, 6. apríl 2009, Innlent Bíllinn þvingaður út af veginum
- Laugardagur, 3. janúar 2009, Innlent Byssumaður afhenti vopnið
- Föstudagur, 18. desember 2009, Innlent Lagði á flótta undan lögreglu
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































