Slæmt veður á Holtavörðuheiði

Aðstæður eru nú erfiðar á Holtavörðuheiði.
Aðstæður eru nú erfiðar á Holtavörðuheiði. mbl.is/Ómar

Slæmt veður er nú á Holtavörðuheiði og erfið færð. Þar er nú að sögn lögreglu snjókoma, hvassviðri, hálka og lítið skyggni og  hafa nokkrir ökumenn lent í vandræðum og óhöppum vegna þess.

Eignatjón hefur orðið vegna þessa en fólk hefur sloppið án teljandi meiðsla.
 

Í ljósi þessa beinir lögreglan í Borgarfirði og Dölum því til ferðamanna að fara þarna um með mikilli varúð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert