Leiddist og kveikti í sér

Lögregla og sjúkralið var kallað að verslun Krónunnar á Selfossi aðfaranótt laugardags vegna manns sem eldur logaði í. 

Þegar lögregla kom á staðinn var enginn eldur sjáanlegur en í ljós kom að ungur maður á 19 ári hafði hellt bensíni í fatnað sinn og borið eld að.  Félagi hans var til staðar með slökkvitæki og slökkti eldinn. 

Maðurinn útskýrði tiltækið með þeim hætti að hann hefði gert þetta sér til gamans þar sem svo leiðinlegt væri á Selfossi.

Ungi maðurinn hlaut ekki skaða af en hann hafði borið vaselín á fætur sína til að fyrirbyggja bruna. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert