Fær skaðabætur vegna samráðs olíufélaga

Dala-Rafn siglir inn til Vestmannaeyja.
Dala-Rafn siglir inn til Vestmannaeyja. mbl.is/Sigurgeir

Útgerðarfélagið Dala-Rafn ehf. í Vestmannaeyjum fékk í dag dæmdar 2,3 milljónir króna í bætur vegna ólöglegs samráðs olíufélaganna Kers, Olís og Skeljungs undir lok síðustu aldar. 

Héraðsdómur Reykjavíkur segir að Dala-Rafni hafi tekist að sýna fram á, að hann hafi orðið fyrir tjóni vegna samráðs olíufélaganna.  Útgerðarfélagið byggði kröfu sína m.a. á því, að samráð olíufélaganna hafi náð til alls olíumarkaðarins á Íslandi og það hafi haft áhrif á viðskipti og viðskiptakjör félagsins hjá olíufélögunum, sem hafi hafi tekist með hinu ólögmæta samráði að halda olíuverði hærra en ef eðlilegar samkeppnisaðstæður hefðu ríkt á olíumarkaðinum á Íslandi.

Fram kemur í dómnum, að Dala-Rafn ehf. hafi ítrekað reynt að fá tilboð í viðskipti sín eða flytja olíuviðskipti sín gegn því að fá hagstæðari kjör, en það hafi engan árangur borið vegna ólögmæts samráðs olíufélaganna.

Þá byggði krafan á því, að olíufélögin hefðu haft með sér ólögmætt samráð á olíu­markaðinum í Vestmannaeyjum sérstaklega.

Auk skaðabótanna voru olíufélögin dæmd til að greiða Dala-Rafni 1 milljón króna í málskostnað.

Dómurinn í heild

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert