Sumar og sigur í lofti segir Jóhanna

Atkvæðið í kassanum. Jóhanna Sigurðardóttir, formaður Samfylkingarinnar.
Atkvæðið í kassanum. Jóhanna Sigurðardóttir, formaður Samfylkingarinnar. mbl.is/Ómar

Jóhanna Sigurðardóttir, formaður Samfylkingarinnar mætti á kjörstað í Hagaskóla fyrir stundu og greiddi atkvæði. Jóhanna sagði sumar í lofti og sigur síns fólks í augsýn. Fjöldi ljósmyndara og myndatökumanna erlendra fjölmiðla fylgdi Jóhönnu inn í Hagaskóla.

Vestur á fjörðum mætti Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins. Guðjón Arnar greiddi atkvæði í Ísafjarðarbæ nú fyrir skömmu.

Síðastur flokksleiðtoganna til að greiða atkvæði var Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins. Hann mætti í Ráðhúsið á ellefta tímanum og skilaði sínu atkvæði.

Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins
Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins mbl.is/Halldór Sveinbjörnsson
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins. mbl.is/Ómar
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert