Sextándi þingmaðurinn gleðitíðindi næturinnar
Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins segir nýtt tímabil hefjast nú hjá Sjálfstæðisflokkinum. mbl.is/Kristinn
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að legið hafi fyrir í langan tíma að Sjálfstæðisflokkurinn hefði tapað fylgi. „Ég tel að það hafi því verið mikilvægt fyrir okkur að fá inn sextánda þingmanninn í lok talningarinnar. Það má kannski segja að það hafi verið einu gleðitíðindi næturinnar.“
Nú hefjist hins vegar nýtt tímabil og hann sé fullur bjartsýni um að Sjálfstæðisflokkinum muni takast að endurheimta traust kjósenda. „Við munum hafa fyrir því, en ég lít bara á þessar aðstæður sem áskorun sem að ég hlakka til að takast á við,“ segir Bjarni.
Sótt hafi verið að flokkunum úr öllum áttum fyrir kosningar nú. „Það hafa verið í umræðunni mál sem aldrei fyrr sem hafa verið okkur andsnúin, en við komum standandi í báðar lappir í gegnum þetta með öflugan þingmannahóp, nýja forystu og mjög ákveðin í því að leggja hart að okkur við að vinna stefnu flokksins aftur fyrra fylgi.“
Bjarni varpar þá fram efasemdum um hvort að áhersla Samfylkingarinnar á ESB aðild eigi eftir að koma þeim flokki til góða. „Samfylkingin nær ekki 30% fylginu og nær ekki fylginu sem að hún hafði árið 2003. Það eru hins vegar Vinstri grænir sem eru að fá sína bestu kosningu í sögunni og mér finnst vel mega túlka niðurstöðuna þannig að þeir séu stærsti sigurvegarinn að þessu sinni, flokkur sem að ekki var með Evrópusambandsaðild á dagskrá.“ Í ljós eigi því eftir að koma hversu vel VG og Samfylkingunni gangi að komast að niðurstöðu.
Full ástæða sé þá til að hafa miklar áhyggjur af efnahagsástandinu. „Ég get ekki annað en óskað þeim sem að taka það að sér velfarnaðar í því mikilvæga verkefni fyrir alla þjóðina og við munum að sjálfsögðu leggja okkar af mörkum í þeirri vinnu.“
Innlent »
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 30. mars 2010, Innlent Ákvörðun S&P í samræmi við væntingar
- Laugardagur, 23. janúar 2010, Innlent Gleðitíðindi segir Júlíus
- Laugardagur, 2. maí 2009, Innlent Amma á Facebook
- Föstudagur, 19. mars 2010, Innlent Ríkisstjórnin á að segja af sér
- Laugardagur, 19. desember 2009, Innlent Valdþreyta alllöngu fyrir hrun
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli


































