Beraði kynfæri sín í sundlaug

Hæstiréttur Íslands.
Hæstiréttur Íslands. mbl.is/Brynjar Gauti

Hæstiréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjaness yfir karlmanni sem braut gegn átta ungum stúlkum. Maðurinn var dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi. Brotin áttu sér stað í Sundmiðstöð Reykjanesbæjar í janúar á síðasta ári. Strauk maðurinn stúlkunum um rassinn utanklæða og kleip þær einnig nokkrar. Þá beraði hann kynfæri sín í tvígang og strauk kynfæri einnar stúlkunnar utanklæða.

Í framburði stúlknanna sem voru ellefu og tólf ára kom fram að maðurinn elti þær um sundlaugina og glápti mikið á þær. Þá hafi hann tekið út á sér typpið á meðan þær voru í kafi. Maðurinn neitaði sök.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert