Sjósetning Þórs fréttaefni í Chile

Frá sjósetningu varðskipsins Þórs.
Frá sjósetningu varðskipsins Þórs. mbl.is

Vefmiðillinn El Sur í Chile hefur birt myndskeið af sjósetningu nýja varðskipsins, Þórs, í skipasmíðastöðinni Asmar í vikunni. Georg Kr. Lárusson var viðstaddur sjósetninguna og má heyra brot úr íslenska þjóðsöngnum þar sem hann er leikinn á myndbandinu.

Áhugasamir geta smellt á tengilinn hér fyrir neðan og fundið myndbandið í þar til gerðu netsjónvarpi, undir titlinum „Asmar impresionó con barco para Islandia“, hægra megin á síðunni.

Vefsíða með myndbandi af sjósetningu varðskipsins Þórs

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert