Árleg skoðun fornbíla

Margar glæsilegar bifreiðar voru skoðaðar í skoðunarstöð Frumherja að Hesthálsi …
Margar glæsilegar bifreiðar voru skoðaðar í skoðunarstöð Frumherja að Hesthálsi í dag. Morgunblaðið/Kristinn

Um tvö hundruð fornbílar voru skoðaðir í skoðunarstöð Frumherja að Hesthálsi í dag. Um er að ræða árlegan skoðunardag fornbíla og var slegið upp hátíð að því tilefni.

Síðustu bílarnir voru skoðaðir á öðrum tímanum og var í kjölfarið farið í fyrstu hópkeyrslu sumarsins.

Áætlað er að um hundrað fornbílum sé nú ekið um höfuðborgarsvæðið. Sá elsti er árgerð 1924 en þeir yngstu árgerð 1972.

Yngstu bílarnir eru 25 ára í ár en sá elsti …
Yngstu bílarnir eru 25 ára í ár en sá elsti árgerð 1924. Morgunblaðið/Kristinn
Alls voru skoðaðir um 130 bílar og fóru þeir í …
Alls voru skoðaðir um 130 bílar og fóru þeir í kjölfarið í fyrstu hópkeyrslu sumarsins. Morgunblaðið/Kristinn
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert