Útlendur ökumaður varð fyrir því óláni að loka bíllyklana inni í bíl þar sem hann staddur á Klettshálsi í gær, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Ísafirði var veður frekar leiðinlegt rigning og talsverður vindur. Var ökumaður orðinn blautur og kaldur þegar lögregla kom á staðinn og aðstoðaði hann.
Í síðustu viku voru framin skemmdarverk á nokkrum bílum við Sindragötu á Ísafirði og er það mál í rannsókn, samkvæmt dagbók lögreglu.