ASÍ áréttar kröfur gagnvart ríkinu

Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ.
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ. mbl.is/RAX

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands lýsir yfir megnri óánægju með seinagang við að endurskipuleggja fjárhag heimilanna, þrátt fyrir að Alþingi hafi samþykkt mikilvægar breytingar á réttar- og samningsstöðu almennings gagnvart kröfuhöfum.

Á ályktun miðstjórnar er þess krafist að stjórnvöld tryggi þegar að heimili í vanda geti nýtt sér þau úrræði sem eiga að standa þeim til boða.

Til þess að svo verði þarf m.a að:

  • Tryggja að nauðsynlegar reglugerðir og verklagsreglur um framkvæmd verði gefnar út strax
  • Falla frá kröfunni um að forsenda fyrir aðstoð sé að lán séu í skilum
  • Gera Ráðgjafastofu um fjármál heimilanna í samráði við héraðsdóm, kleift að ráða a.m.k. 50 fjármálaráðgjafa til næstu 6-9 mánaða til að aðstoða fólk í greiðsluvanda
  • Heimila sjálfstætt starfandi einstaklingum að nýta sér úrræðin enda sé greiðsluvandinn vegna eðlilegra húsnæðisskulda
  • Bæta verulega upplýsingagjöf til almennings um þau úrræði sem í boði eru

Alþýðusambandið segist ekkert erindi eiga í nánara samstarf við stjórnvöld um framvindu efnahagsmála fyrr en búið er að koma þessum málum í rétt horf.

Þá er áréttuð tillaga ASÍ um að stofnaður verði Bjargráðasjóður heimilanna þar sem lán sem eru á afskriftareikningum fjármálastofnana verði færð á eina hendi til að tryggja jafnræði og skilvirkni við að endurskipuleggja fjárhag heimilanna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert