Boðar sendiherra á sinn fund
Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, ætlar að boða sendiherra Bretlands á sinn fund vegna ummæla Gordons Brown, forsætisráðherra Bretlands um að breska ríkið eigi í viðræðum við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn vegna Icesave-deilunnar. Málið var rætt á ríkisstjórnarfundi í morgun.
Ríkisstjórnarfundinum var að ljúka og sagði Össur að hann ætlaði að kalla sendiherrann á sinn fund í dag þar sem hann krefst skýringa á ummælum Brown. Össur segist hins vegar taka orð fulltrúar Alþjóða gjaldeyrissjóðsins á Íslandi trúanleg þar sem hann segir að engar viðræður séu í gangi á milli sjóðsins og Breta um Icesave-málið.
Á Össuri mátti skilja að hann tæki málið alvarlega en hann sæi hins vegar enga ástæðu til þess að slíta stjórnmálasambandi við Breta vegna málsins.
Í fyrirspurnartíma í neðri deild breska þingsins á miðvikudag sagði Brown, að Bretar ættu nú í samningaviðræðum við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, IMF, um greiðslu skulda vegna hruns íslensku bankanna.
Hann var spurður um stöðu Christie-spítalans í Manchester sem tapaði sex milljónum punda við fall Kaupþings. Sagði Brown að hún myndi verða ljós þegar menn vissu fyrir víst hve mikið myndi endurheimtast af skuldum íslensku bankanna.
Sagði hann íslensk stjórnvöld hafa haft eftirlit með umræddum bönkum á hendi en þess má geta að bankinn Kaupthing Singer & Friedlander var breskur banki og heyrði því ekki undir Fjármálaeftirlitið hér.
„Það er fyrst og fremst skylda íslenskra stjórnvalda að borga og þess vegna erum við í samningaviðræðum við IMF og fleiri stofnanir um það hve hratt Íslendingar geti endurgreitt tapið,“ sagði ráðherrann.
Nánar verður fjallað um þetta í MBL Sjónvarpi á eftir.
Bloggað um fréttina
-
Axel Jóhann Hallgrímsson Nú eru allra augu á þér Össur! -
Gylfi Þór Þórisson Kalla heim sendiherra okkar í Bretlandi -
Stefán Friðrik Stefánsson Skítleg vinnubrögð hjá Gordon Brown -
Jóhannes Ragnarsson Þá verður slegið títt og fast -
Sigurður Rúnarsson Beck Kæri herra Graham Brady: www.christies-and-k-singer-friedlander -
Guðni Karl Harðarson Það sem ekki má -
Jón Ingi Cæsarsson Ómerkilegur pappír hann Gordon Brown ? -
Jenný Anna Baldursdóttir Þolandi eða gerandi? -
Tómas Ibsen Halldórsson Mister Brown
Innlent »
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 9. maí 2009, Innlent Ánægður með svör
- Fimmtudagur, 9. október 2008, Innlent Sendiherra kallaður á fund
- Föstudagur, 8. maí 2009, Innlent Ummælum Browns mótmælt
- Föstudagur, 8. maí 2009, Innlent Mótmæli vegna Gordons Brown
- Föstudagur, 8. maí 2009, Innlent Hafa fengið nóg af Bretum
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli



































