Svifryk yfir mörkum í dag

Svifryk í Reykjavík.
Svifryk í Reykjavík. mbl.is/RAX
Líkur eru á að svifryksmengun verði yfir sólarhringsheilsuverndarmörkum í dag. Heilsuverndarmörk svifryks  eru 50 míkrógrömm á rúmmetra en klukkan þrjú í dag mældist hálftímastyrkur svifryks við Grensásveg 198 míkrógrömm á rúmmetra.

Bílaumferð er meginorsök loftmengunar í Reykjavík. Annar orsakavaldur svifryks í dag er ryk úr opnum grunnum og af framkvæmdasvæðum og hefur það staðbundin áhrif.

Umhverfis- og samgöngusvið Reykjavíkur segir, að búast megi við töluverðri svifryksmengun síðdegis í dag og ættu börn og þeir sem eru með viðkvæm öndunarfæri að forðast umferðargötur. Fólk ætti því að huga að því að taka strætó heim.

Fylgjast má með svifryksmengun á veðurvef mbl.is.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert