Innlent
| mbl
| 9.5.2009
| 18:24
| Uppfært
23:30
Eiginkonurnar fengu að kynnast slökkvistarfinu
A-vakt slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins setti í dag upp kynningardag fyrir eiginkonur slökkviliðsmanna á vaktinni. Konurnar fengu m.a. að fara í reykköfun og bjarga dúkkum úr bílflökum og sjávarháska. Um kvöldmatarleytið verður svo grillað við slökkvistöðina við Tunguháls og skemmta slökkviliðsmennirnir konum sínum fram eftir kvöldi.
Vaktir slökkviliðsmanna SHS eru fjórskiptar og eru um þrjátíu á hverri vakt. Segja má að um sé að ræða sjálfstæðar einingar og tók A-vaktin sig til og setti upp kynningu fyrir konurnar. „Þetta er til þess að efla andann á vaktinni, samheldni kvennanna auk þess sem gott er að þær viti hvað makar þeirra eru að fást við á hverjum degi,“ segir Sverrir Björn Björnsson, deildarstjóri A-vaktarinnar.
Dagurinn hófst á kynningu á slökkvistarfinu en einnig félagstuðningskerfinu, enda eru þær í bestri stöðu til að sjá hvernig menn þeirra eru stemmdir. „Við sjáum það minnst sjálfir í hvaða standi við erum og þær hafa aðstöðu til að hringja í ótengda aðila. Enginn fær því að vita hver hringdi, hvort það er einhver félagi eða eiginkonan.“ Um er að ræða andlegan stuðning vegna starfsins.
Eftir kynninguna voru settar upp fjórar vinnustöðvar, reykköfun, körfu- og sjúkrabifreið, björgun úr bílflökum og sjóbjörgun. Sverrir Björn segir að það hafi m.a. komið þeim á óvart hversu þungar klippurnar og glennurnar eru, en þær eru m.a. notaðar til að ná fólki úr bílflökum.
Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri, hélt svo yfir konunum ræðu áður en þær voru sendar í Laugar Spa síðdegis. Á meðan gerðu slökkviliðsmennirnir sig klára fyrir kvöldið, kveiktu upp í grillinu og gerðu veisluna klára.
Sverrir Björn segir kynningin hafi tekist vonum framar, en veit ekki til þess að aðrar vaktir innan SHS muni fylgja í kjölfarið.

Bloggað um fréttina
-
Gunnar Th. Gunnarsson Starfsfræðsla í Alcoa -
Marta Gunnarsdóttir Næst eru það börn og barnabörn
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
Innlent »
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 27. janúar 2010, Innlent Lágmarksviðbúnaður verði á Reykjavíkurflugvelli
- Föstudagur, 1. maí 2009, Innlent Önnur lögmál á landsbyggðinni
- Miðvikudagur, 29. júlí 2009, Innlent Keppa fyrir Íslands hönd
- Miðvikudagur, 30. júlí 2008, Innlent „Kemur allt í ljós á morgun“
- Miðvikudagur, 30. september 2009, Innlent Líðan eftir atvikum góð
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
HONDA ACCORD EXECUTIVE 2,4 i-VTEC 2006 - SKIPTI ÓDÝRARI
Honda Accord Tourer Executive 2,4 i-VTEC 2006. Sjálfskiptur, ekinn aðeins 78 þ. ...
Til sölu 15" Álfelgur undan Toyotu Avensis "01
Til sölu 15" Álfelgur undan Toyotu Avensis "01 4 stk. Verð 15.000kr. Uppl. í sím...
Til sölu kerrur
Til sölu þrjár kerrur, þar af ein lokuð farangurskerra. Smíðaðar úr ryðfríu stál...
Mitsubishi Galant (ES
Mitsubishi Galant (ES)
2001 árgerð
Ekinn ca 11000 mílur (176þús km)
Slagrými ...