Jóhanna spurði og bíður svara

Jóhanna Guðrún á æfingu í Moskvu í dag.
Jóhanna Guðrún á æfingu í Moskvu í dag. Reuters

Óhætt er að fullyrða að flutningur Jóhönnu Guðrúnar Jónsdóttur á laginu „Is it true?“, sem er framlag Íslands í fyrri undankeppni Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, hafi verið hnökralaus í Moskvu í kvöld. Það verður svo síðar í kvöld sem Evrópa svarar spurningu Jóhönnu.

Ísland var 12. þjóðin af 18 til að stíga á svið í kvöld. Það verða hins vegar aðeins 10 þjóðir sem komast áfram í úrslitin.

Aftur verða undanúrslit 14. maí og úrslitin sjálf verða 16. maí. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert