Katrín verður samstarfsráðherra

Katrín Jakobsdóttir.
Katrín Jakobsdóttir. mbl.is/Árni Sæberg

Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra, verður jafnframt samstarfsráðherra í nýrri ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs. Þetta var ákveðið á fyrsta fundi ríkisstjórnarinnar á Akureyri í dag.

Katrín er fædd 1976 og tók sæti á Alþingi 2007. Hún er varaformaður Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert