Lög um tímabundna greiðsluaðlögun taka gildi

Ráðgjafarstofa um fjármál heimilanna
Ráðgjafarstofa um fjármál heimilanna mbl.is/Ómar

Lög um tímabundna greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna á íbúðarhúsnæði taka gildi 15. maí nk. Með lögunum getur eigandi íbúðarhúsnæðis leitað eftir greiðsluaðlögun vegna skulda sem tryggðar eru með veði í húsnæði hans, ef hann sýnir fram á að hann sé og verði um einhvern tíma ófær um að standa í fullum skilum á greiðslum. Ráðgjafarstofa um fjármál heimilanna hefur tekið að sér að annast upplýsingagjöf um úrræðið.

Héraðsdómur skipar umsjónarmann með greiðsluaðlögun

Áður en einstaklingur óskar eftir tímabundinni greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna verður hann að hafa leitað annarra tiltækra greiðsluerfiðleikaúrræða sem í boði eru hjá lánastofnunum og sýna fram á að þau úrræði hafi reynst ófullnægjandi, að því er fram kemur í tilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu.

Sé svo getur hann óskað eftir greiðsluaðlöguninni með því að senda skriflega beiðni til héraðsdómstóls í því umdæmi þar sem hann á lögheimili. Taki héraðsdómari beiðnina til greina skal hann skipa umsjónarmann með greiðsluaðlöguninni. Viðkomandi greiðir þá aðeins þær greiðslur af lánum sem talið er að hann geti staðið straum af. Frestað er greiðslu þess hluta skuldbindinga sem eftir eru svo lengi sem greiðsluaðlögun stendur, sem getur verið í allt að fimm ár.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert