Tekinn á 177 km hraða

Úr myndasafni. Lögreglan stöðvar bíl á Reykjanesbraut.
Úr myndasafni. Lögreglan stöðvar bíl á Reykjanesbraut. mbl.is/Hilmar Bragi

Lögreglan á Suðurnesjum svipti í kvöld 17 ára pilt ökuleyfi á staðnum eftir að hann var tekinn á 177 km hraða á Reykjanesbrautinni. Leyfilegur hámarkshraði er 90 km hraði. Á sama tíma varð húseigandi var við innbrotsþjófa í íbúð sinni er hann var í kaffiboði í næsta húsi.

Að sögn lögreglunnar er sjaldgæft að ökumenn séu teknir á svo miklum hraða en akstursskilyrði voru með besta móti á brautinni í kvöld, bjartviðri og þurr akvegur.

Lögreglunni barst tilkynning frá vegfarendum um vítaverðan akstur og vildi svo heppilega til að sérsveitarmaður var í nágrenninu sem mældi hraða bílsins og tók síðan manninn höndum.

Hann var svo færður á lögreglustöð þar sem hann var sviptur ökuréttindum.

Á sama tíma varð húsráðandi í Keflavík var við innbrot í íbúð sína þar sem hann var í kaffi hjá nágranna sínum. Hljóp hann þá til og hrakti fjóra grímuklædda menn á flótta.

Lögregla leitar mannanna en þeir voru að róta í húsmunum þegar þeir lögðu á flótta.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert