Lýst eftir karlmanni

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Jóni Helga Lindusyni, 16 ára. Ekki er vitað hvar hann hefur haldið sig síðan s.l. miðvikudag er hann strauk frá Götusmiðjunni.  Talið er að hann sé á höfuðborgarsvæðinu.

Jón er fæddur 1993.  Hann er um 175 cm á hæð, grannvaxinn og dökkhærður.  Þegar hann fór frá Götusmiðjunni var hann klæddur svartri úlpu, gallabuxum og svörtum skóm.  

Lögreglan biður alla sem geta gefið upplýsingar um ferðir Jóns eða dvalarstað hans að láta lögreglu vita í síma 444-1104.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert