Veggjakrotarar staðnir að verki

Þrír ungir piltar voru staðnir að verki í gærmorgun við að merkja sér eigur annarra, meðal annars borgarinnar.

Einn veggjakrotarinn hékk með úðabrúsann utan á göngubrúnni yfir Miklubraut við Rauðagerði og síðan færðu þeir sig í strætisvagnaskýlið og héldu þessari ólöglegu iðju áfram þar. Strákarnir forðuðu sér í burtu þegar þeir urðu varir við að fylgst var með þeim.

Mikill kostnaður fellur á Reykjavíkurborg vegna veggjakrots. Á síðasta ári náðist góður árangur við að draga úr eignaspjöllum af þessu tagi í borginni.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert