Ætlar að rækta erfðabreytt bygg á Íslandi

ORF-Líftækni áformar að rækta erfðabreytt bygg í tilraunareitum. stækka

ORF-Líftækni áformar að rækta erfðabreytt bygg í tilraunareitum. Jim Smart

mbl.is Eftir Egil Ólafsson

Líftæknifyrirtækið ORF-Líftækni hefur sótt um leyfi til Umhverfisstofnunar að hefja útiræktun á erfðabreyttu byggi hér á landi. Ekki er full samstaða í Ráðgjafarnefnd um erfðabreyttar lífverur um hvort mæla eigi með því að farið verði út í verkefnið.

ORF-líftækni  sótti um leyfi til ræktunar erfðabreytts byggs á akri, til að gera samanburð á yrkjum. Verkefnið miðar einnig að úrvinnslu og hreinsun og fullvinnslu á próteinum til annarra nota en fóðurs eða fæðis.

Deilt hefur verið um notkun á erfðabreyttum plöntum í landbúnaði og líftækni um árabil víða um lönd. Ekki hafa verið færðar óyggjandi sönnur á að erfðabreyttar lífverur séu skaðlegar fyrir heilsu manna, en áhyggjur manna snúa m.a. að því að áhrifin komi fram á löngum tíma og því séu menn að taka áhættu með því að nota þessa tækni. Einnig eru áhyggur af því hvaða áhrif erfðabættar plöntur, sem eru oftast mjög öflugar og þola meira en aðrar plöntur, hafa í náttúrunni.

Snorri Baldursson, starfandi formaður Ráðgjafanefndar um erfðabreyttar lífverur, segir í umsögn sinni að löggjafinn og meirihluti Raðgjafarnefndar um erfðabreyttar lífverur sé þeirrar skoðunar að ekki beri að hafna notkun þessarar tækni heldur skuli meta hvert tilvik fyrir sig út frá öryggissjónarmiðum.

Gunnar Á. Gunnarsson, sem einnig á sæti í nefndinni, telur hins vegar að ekki hafi verið sýnt fram á ásættanlegt öryggi með því að sleppa erfðabreyttu byggi út í náttúruna með þeim hætti sem fyrirhugað er að nota í verkefninu.

Náttúrufræðistofnun hefur einnig veitt umsögn um verkefnið. Stofnunin telur að skoða þurfi tvö meginatriði vegna ræktunar á erfðabreyttu byggi og hugsanlegrar dreifingu erfðabreyttra lífvera út í íslenska náttúru. Í fyrsta lagi þurfi að skoða hvort hætta sé á því að próteinið sem á að framleiða sé skaðlegt fyrir aðrar lífverur, berist það í þær og í öðru lagi hvort gen sem hið erfðabreytta bygg er hýsill fyrir berist í aðrar lífverur með víxlfrjóvgun eða eftir öðrum leiðum.  Bent er á að ORF-líftækni ætli að gera ýmsar ráðstafanir til að koma í veg fyrir þetta svo sem með varnarbeltum og böndum yfir tilraunareitina svo að fuglar komist síður í þá.  Ljóst sé þó að útilokað verði að koma alfarið í veg fyrir að fuglar, hagamýs eða smádýr í jarðvegi komist í bygg sem fellur af öxum. Náttúrufræðistofnun leggst þó ekki gegn umsókninni.

Umhverfisstofnun hefur ákveðið að boða til opins fundar í Frægarði, fundarsal Landgræðslu Ríkisins í Gunnarsholti, þriðjudaginn 26. maí n.k. og hefst fundurinn kl. 13:30. Á fundinum mun fulltrúi stofnunarinnar fara yfir helstu mál er varða forsendur slíkra leyfisveitinga, en á fundinum mun fulltrúi ORF Líftækni kynna starfsemi fyrirtækisins auk þess sem fulltrúar Náttúrufræðistofnunar Íslands og Ráðgjafarnefndar um erfðabreyttar lífverur munu kynna framkomnar umsagnir um fyrirhuguð áform fyrirtækisins um útiræktun. Áhugasamir aðilar geta einnig komið skriflegum athugasemdum við umsóknina á framfæri við stofnunina. Umsagnafrestur er til 28. maí.

Sjá nánar á www.ust.is

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...

Lántakendur varaðir við

05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »
Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.

Athugasemdir við Rússa

05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

Í gær, 17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
HARÐVIÐUR TIL HÚSBYGGINGA
Harðviður til húsabygginga  Sjá nánar á...
Handunnar vörur úr íslensku roði & leðri
Armbönd, símaveski, servíettuhringir, töskur o.fl. unnið úr íslensku roði og leð...
Til sölu Palomino Yearling 4103 10 fet árg. 2006
Fortjald, markísa, sólarsella, verð 1.250.000 Upplýsingar í síma 8971942...
225-70-15C
óska eftir heilsárs dekkjum undir sendibíl að stærðinni 225-70-15C. Upplýsingar ...
 
12836 fellahverfi - útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Aðalfundur alliance

Aðalfundur 2012 Aðalfundur Alliance...
Aðalfundarboð félag skipstjórnarmanna

Félag skipstjórnarmanna Aðalfundarboð...
Sýslumaðurinn í hafnarfirði - framhald uppboð

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....