Mjög óvinsælar aðgerðir
Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is
Gjöld hækka á áfengi, tóbak, bensín og olíu nú þegar frumvarp Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra þess efnis hefur verið samþykkt. Gjöld á áfengi og tóbak hækka um 15%, bensíngjald hækkar um 10 krónur á lítrann en olíugjaldið um fimm krónur. Þá hækka bifreiðagjöld um 10%. Áætlað er að þetta skili 4,4 milljörðum í ríkissjóð á ári. Þar af eiga álögur á áfengi og tóbak að skila 1.700 milljónum.
Hermann Guðmundsson, forstjóri N1 segir álögurnar á eldsneyti nú mjög miklar miðað við fyrir nokkrum mánuðum. „Stjórnvöld hafa nú hækkað eldsneytisverð um 16 krónur á fáum vikum og eru álögur ríkisins nú í hæstu hæðum.“ Forstjóri Skeljungs, Einar Örn Ólafsson, heitir á stjórnvöld að ná árangri í gengismálunum svo að hækkunin gangi til baka.
Félag íslenskra bifreiðaeigenda sagði yfirvöld í skattavíking gegn bifreiðaeign og -notkun landsmanna. Fulltrúar bæði SA og ASÍ mættu fyrir þingnefndir í gærkvöldi og töluðu samkvæmt heimildum mjög gegn frumvarpinu þar. Þórður B. Sigurðsson, formaður Hagsmunasamtaka heimilanna, segir að setja hefði átt hámark á verðtrygginguna áður en farið var út í svona aðgerðir, svo að þær spiluðu ekki með skuldir heimilanna. Hann talar um ríkisverðbólgu.
8 milljarðar á bök heimilanna
Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði í umræðum á Alþingi í gærkvöldi að frumvarpið þýddi 2,7 milljarða króna tekjuauka ríkisins á þessu ári, en átta milljarða hækkun á skuldum heimilanna. Hagfræðingar sem rætt var við í gærkvöldi rengja ekki þessa fullyrðingu, hún sé nokkuð nærri lagi. Þórólfur Matthíasson prófessor bætir því þó við að tekjuaukinn komi strax í ríkissjóð en skuldaaukningin leggist á á næstu áratugum. Tryggvi beri því saman epli og appelsínur. Gylfi Zoëga prófessor rengir ekki heldur fullyrðingu Tryggva Þórs. Enginn góður kostur sé hins vegar í stöðunni, þótt mismunandi skattahækkanir hafi mismunandi áhrif.Bloggað um fréttina
-
G. Tómas Gunnarsson Gamlir leiðtogar, gamlar aðferðir -
Reynir W Lord Þetta er rétt að byrja... -
Magnús Sigurðsson Bankakerfið endurreist á kostnað heimilanna? -
Sigurjón Sveinsson Erfiðar ákvarðanir, svona er þetta bara -
Hjalti Grétarsson Til hamingju fíflin ykkar... -
Jón Halldór Guðmundsson Sjálfsagt fyrsta skref. -
GeiriGrimmi Gerum eitthvað af viti! -
Ólafur Ingólfsson Vísitölubindingin afleiðing krónunnar -
Jóhanna Kristín Drekka meira og reykja meira!! -
Árni Davíðsson Hvað á að gera í staðinn? -
Geir Ágústsson Lágtekjuskattar hækka -
Vésteinn Valgarðsson Bravó, laglegt... -
Ingimar Eggertsson Já þetta er nákvæmlega réttahliðin á VG. -
-
Ingólfur H Þorleifsson Þessi ríkisstjórn er algerlega ráðalaus. -
Stefán Gíslason Enn af dauðum sniglum
Innlent »
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 28. maí 2009, Innlent Álögur á eldsneyti og áfengi hækka
- Föstudagur, 12. desember 2008, Innlent Forsætisráðherra fer ekki með rétt mál
- Miðvikudagur, 18. nóvember 2009, Innlent Þriggja þrepa vsk
- Þriðjudagur, 22. desember 2009, Innlent Kassi af rauðvíni mun hækka um 381 krónu
- Fimmtudagur, 3. desember 2009, Innlent Áfengisverð hækkar um 5-8%
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju



































