Mikil skjálftavirkni áfram

Mikill fjöldi skjálfta hefur orðið í nágrenni við Grindavík í …
Mikill fjöldi skjálfta hefur orðið í nágrenni við Grindavík í gærkvöldi og nótt.

Nánast stöðugir jarðskjáftar hafa verið í nótt á svæðinu norðaustan við Grindavík þar sem jarðskjálfti, sem mældist 4,9 stig á Richter, varð klukkan 21:33 í gærkvöldi. Skjálftarnir í nótt hafa hins vegar verið litlir, flestir á bilinu 1-1,8 stig. Einn skjálfti klukkan rúmlega tvö var þó 3,9 stig og kom hann fram á mælum evrópsku jarðskjálftastofnunarinnar.

Að sögn Gunnars Guðmundssonar, jarðfræðings á Veðurstofunni, eru skjálftahrinur sem þessar algengar á Suðurnesjum þótt nokkuð sé liðið síðan svo stór skjálfti mældist þar.

Ekki er vitað til að neitt tjón hafi orðið af völdum skjálftans í gærkvöldi, sem reið yfir réttu ári  eftir Suðurlandsskjálftann, sem olli miklu tjóni þann 29. maí í fyrra.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert