Strandar á vöxtum Seðlabankans

Gylfi Arnbjörnsson kemur til fundar í Ráðherrabústaðnum í gærkvöldi.
Gylfi Arnbjörnsson kemur til fundar í Ráðherrabústaðnum í gærkvöldi. mbl.is/Eggert

„Það er ljóst að kannski standa öll spjót á Seðlabankanum í augnablikinu,“ sagði Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambandsins, að loknum fundi með ráðherrum í gærkvöldi.

„Við gerðum grein fyrir því að það er mjög þungt á milli okkar og atvinnurekenda varðandi launaliðinn og hangir á bláþræði svo næstu daga verður að ráðast hvert framhaldið verður þar. Það er alveg ljóst að afstaða atvinnurekenda ræðst að miklu leyti af vaxtamálum og þróun þeirra þannig að það er ákaflega mikilvægt næstu daga að reyna að finna einhverja leið út úr þessum ógöngum.“ Gylfi segir mikinn vilja til þess að vinna áfram með ríkisstjórninni og sameinast um framtíðarsýn, hinsvegar liggi lausn vandans hvað varðar launahækkanir á vinnumarkaði ekki hjá henni.

„Það er auðvitað ekki ríkisstjórnarinnar að taka ákvörðun um vexti, það er annarra. En ég held að það séu allar forsendur til þess að ná saman um það sem snýr að málum milli okkar og ríkisstjórnarinnar.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert