Skeljungur og Orkan endurgreiða

Þeir viðskiptavinir Skeljungs og Bensínorkunnar sem keyptu bensín frá kl. 9:30 föstudagsmorguninn 29. maí til kl. 12 mánudaginn 8. júní geta fengið 12,50 krónur á hvern lítra endurgreiddar gegn framvísun kvittunar.

Þeir viðskiptavinir sem búsettir eru á höfuðborgarsvæðinu geta komið á skrifstofu Skeljungs og Orkunnar að Hólmaslóð 8, skilað inn kvittun fyrir bensínúttektinni og fyllt út eyðublað vegna endurgreiðslu. Viðskiptavinir Skeljungs sem búsettir eru á landsbyggðinni eru beðnir um að leita til bensínstöðva félagsins í sinni heimabyggð.

Olíufélögin lækkuðu öll bensínverð hjá sér í dag í kjölfar þess að upplýst var að túlkun á því hvernig hækkun opinbers bensíngjalds skyldi innheimt, var röng.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert