Reykjanesbær má nota heitið Vatnaveröld

Reykjanesbær.
Reykjanesbær. www.mats.is

Neytendastofa hefur tekið þá ákvörðun að banna ekki Reykjanesbæ að nota heitið Vatnaveröld á sundmiðstöð bæjarins.

Gæludýraverslunin Vatnaveröld kvartaði til Neytendastofu yfir notkun Reykjanesbæjar á heitinu þar sem mikill ruglingur skapaðist milli þeirra. Gæludýraversluninni bærust t.a.m. símtöl með fyrirspurnum um opnunartíma og óskilamuni.

Neytendastofa segir, að þar sem þessir aðilar séu ekki keppinautar á markaði muni notkun Reykjanesbæjar á heitinu ekki valda hættu á því að neytendur rugluðust á fyrirtækjunum eða kæmu til með að eiga viðskipti við rangan aðila.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert