Sigurður Kári ráðinn aðstoðarmaður Bjarna

Sigurður Kári Kristjánsson.
Sigurður Kári Kristjánsson.

Sigurður Kári Kristjánsson, fyrrverandi alþingismaður, hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins. 
Sigurður Kári sat á Alþingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn frá árinu 2003 til 2009.

Sigurður Kári er lögfræðingur að mennt og starfaði sem lögmaður frá árinu 1998 til 2003 þegar hann tók sæti á Alþingi. 

Eiginkona Sigurðar er Birna Bragadóttir.
 
 


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert