Landsvirkjun og ríkið gera viðbúnaðarsamning

stækka

Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Landsvirkjun og ríkið hafa gert með sér viðbúnaðarsamning, sem kveður á um að ef Landsvirkjun hefur ekki nægjanlegt fjármagn til að mæta vaxtagreiðslum eða afborgunum lána mun Seðlabankinn afhenda fyrirtækinu erlendan gjaldeyri og Landsvirkjun afhenda bankanum krónur eða skuldabréf í staðinn.

Í tilkynningu frá Landsvirkjun segir að lánshæfiseinkunnir íslenska ríkisins og Landsvirkjunar hafi lækkað í BBB- hjá Standard & Poor´s og Baa1 hjá Moody’s Investor Service.

Landsvirkjun hafi haft lánshæfiseinkunn síðan 1998 í því skyni að auðvelda fyrirtækinu aðgang að lánsfé en fyrirtækið hefur frá stofnun fjármagnað virkjunarframkvæmdir að mestu leyti á erlendum markaði. Matsfyrirtækin hafa frá upphafi gefið Landsvirkjun sömu lánshæfiseinkunn og íslenska ríkinu.

„Erlendir aðilar hafa nokkrar áhyggjur af kerfisáhættu í íslensku efnahagslífi, m.a. vegna óvissu á alþjóðlegum fjármálamörkuðum. S&P´s setti lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar á athugunarlista hinn 8. maí sl. og metur horfur neikvæðar. Í rökstuðningi er einkum lögð áhersla á að óvissa sé um hvort íslenska ríkið muni koma tímanlega til aðstoðar ef fyrirtækið lendir í fjárhagserfiðleikum. Til að bregðast við og draga úr áhyggjum erlendra aðila hafa Landsvirkjun og ríkið gert með sér viðbúnaðarsamning. Samningurinn er með þeim hætti að ef Landsvirkjun hefur ekki nægjanlegt fjármagn til að mæta vaxtagreiðslum eða afborgunum lána mun Seðlabankinn afhenda fyrirtækinu erlendan gjaldeyri og Landsvirkjun afhenda bankanum krónur eða skuldabréf í staðinn. Fjárhæð samningsins er að hámarki 300 milljónir Bandaríkjadala og rennur hann út 1. júlí 2011.

Lausafé Landsvirkjunar er nú um 90 milljónir Bandaríkjadala en að auki hefur fyrirtækið aðgang að erlendu veltiláni. Að veltiláninu standa fjórtán alþjóðlegar fjármálastofnanir, þar á meðal Barclay’s, Citigroup, JP Morgan og Société Générale. Landsvirkjun hefur því mikinn aðgang að lausafé í erlendri mynt sem ásamt fé úr rekstri dugar til greiðslu vaxta og afborgana út árið 2010. Því eru hverfandi líkur á því að reyna muni á viðbúnaðarsamninginn," segir í tilkynningunni frá Landsvirkjun.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Kanadadollari. Úr myndasafni.

Segir stuðning við Kanadadollar

Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

Í gær, 17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
Í gær, 17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

Í gær, 17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

Í gær, 16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Harður árekstur í Engidal

Í gær, 17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
Í gær, 17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

Í gær, 16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Ljós microfiber sófi til sölu
Hef til sölu ljósan 3ja sæta sófa úr microfiber efni. Hann er 197 cm á lengd, of...
Plexiform Dugguvogi 11 104 simi 5553344
Póstkassar reyklitaðir, hvítir, svartir og trékassar. Bæklingavasar á borð og á ...
SPÁNN - Gullna ströndin Costa Brava
Costa Brava - Pladja de Aro er frábær sólarstranda staður. Við leigum út íbúð st...
Ford Econoline 250 4x4 Til sölu
Árg 91 Húsbíll Skoð 2011 Ek 200 þkm 8cyl Bensín Ssk. Vél yfirfarin fyrir 40þ km ...
 
Deiliskipulag á grundartanga

Deiliskipulag á Grundartanga Austur...
Sýslumaður snæfellinga - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Breyting á aðalskipulagi norðurþings

Norðurþing Skipulags- og byggingarfullt...
Sýslumaðurinn í vík - framhald uppboðs

Uppboð www.naudungarsolur.is Framhald up...