ASÍ boðar til formannafundar

Fulltrúar ASÍ koma til fundar í Stjórnarráðinu í kvöld.
Fulltrúar ASÍ koma til fundar í Stjórnarráðinu í kvöld. mbl.is/Ómar

Boðað hefur verið til fundar formanna aðildarfélaga Alþýðusambands Íslands á morgun um stöðuna í viðræðum við atvinnurekendur og stjórnvöld um kjaramálin og stöðugleikasáttmála.

Fundahöld hafa staðið yfir í allt kvöld milli stjórnvalda, aðila vinnumarkaðar og sveitarfélaga í Stjórnarráðinu þar sem freista átti þess að leggja síðustu hönd á svonefndan stöðugleikasáttmála.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert