360 sagt upp í hópuppsögnum

80% þeirra sem er sagt upp í hópuppsögnum starfa í …
80% þeirra sem er sagt upp í hópuppsögnum starfa í byggingariðnaði

Alls var um 360 manns sagt upp í júní í fjórum hópuppsögnum. Þar af var yfir 270 manns sagt upp hjá einu stóru verktakafyrirtæki í byggingariðnaði og koma þær uppsagnir til framkvæmda á tímabilinu ágúst til nóvember. Af þeim fjölda eru þó yfir 70 manns sem aðeins voru með tímabundna ráðningu og nokkrir í viðbót voru á uppsagnarfresti.

80% úr byggingariðnaði

Önnur hópuppsögn barst að auki úr byggingariðnaði og er um 80% hópuppsagna að þessu sinni úr þeirri atvinnugrein, ein hópuppsögn barst úr iðnaðarstarfsemi og ein úr flutningastarfsemi. Þessar hópuppsagnir koma til framkvæmda á tímabilinu ágúst og fram í desember.

Sjá nánar á vef Vinnumálastofnunar

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert