Föstudagsumferð út úr bænum

mbl.is/Ómar

Stöðugur straumur hefur verið í allan dag út úr borginni. Að sögn lögreglunnar í Borgarnesi hefur umferðin verið nokkuð þung en að mestu gengið mjög vel, utan einn minni háttar árekstur við Hafnará undir Hafnarfelli. Þá eru mjög margir bílar með ferðavagn af einhverju tagi í eftirdragi.

Lögreglan á Selfossi segir umferðina ganga nokkuð greiðlega. Segja má að það sé hefðbundin föstudagsumferð, jafnvel ívið minni en um síðustu helgar. Engin óhöpp hafi orðið á hringveginum á Suðurlandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert