Pósthússtræti lokað vegna góðviðris

Sumarstemning í Pósthússtræti
Sumarstemning í Pósthússtræti mbl.is/Júlíus

Pósthússtræti verður lokað í dag og um helgina vegna góðviðris. Fram kemur í tilkynningu Reykjavíkurborgar að þetta sé gert  til að bæta aðstöðu fyrir gangandi vegfarendur í miðborginni  og að lokun götunnar í blíðviðri hafi lagst vel í bæði gangandi vegfarendur og þá sem reka veitingahús umhverfis Austurvöll.

Þá segir að Umhverfis - og samgöngusviði hafi reglulega borist tilögur um lokun fleiri gatna og til dæmis Austurstræti, Bankastræti og Laugavegur að Frakkastíg verið nefnd í því sambandi 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert