Uppselt er í Vestmannaeyjuna Herjólf fimmtudag fyrir Þjóðhátíð í Eyjum. Fram kemur á þjóðhátíðarvefnum Dalurinn.is að uppselt sé fyrir „farþega, bíla, hunda, ketti og ísbíla þann 30.júlí.“
Hins vegar sé pláss í næturferð aðfaranótt föstudagsins, sem fari kl. 2 að nóttu frá Þorlákshöfn.
Þriðjudaginn 4.ágúst er einnig uppselt í skipið, einnig í næturferðina.