34 tilfelli A(H1N1) inflúensu

Síðustu tvo sólarhringana hafa ellefu tilfelli verið staðfest á Íslandi af nýju inflúensunni A(H1N1), sem kölluð hefur verið svínaflensan, og hefur hún því greinst hjá samtals 34 einstaklingum frá því í maí sl. 

Um er að ræða tvo 15 ára gamla pilta sem komu til landsins 19. júlí sl. frá Gautaborg en þar höfðu þeir tekið þátt í fótboltamóti, 17 ára gamla stúlku frá Spáni sem tekið hafði þátt í skátamóti hér á landi, 28 ára gamla stúlku sem kom frá Ástralíu 19. júlí sl., 5 ára gamlan dreng sem kom frá Tælandi 21. júlí sl., 29 ára gamlan karmann sem kom frá Kína nýverið, 17 ára gamla stúlku sem ekki hefur ferðast erlendis og óljóst er um tengsl við smitaða einstaklinga, þrjá 27-39 ára gamla karlmenn og 27 ára gamla konu en ekkert þeirra hefur ferðast erlendis og óljóst er um tengsl þeirra við smitaða einstaklinga.

Enginn þessara sex sjúklinga var með alvarleg einkenni og eru þeir allir á batavegi.

Landlæknisembættið vekur athygli á því að framundan er mesta ferðamannhelgi ársins og mikið um mannamót. Með hliðsjón af því að inflúensan er tiltölulega væg um þessar mundir hafa engin tilmæli verið gefin um samkomubann. Engu að síður telur embættið rétt að vekja athygli á því að allir sem eru með inflúensulík einkenni (skyndilegur hiti, beinverkir, höfuðverkur, hálssærindi, hósta) eiga að halda sig heima í sjö daga frá upphafi þeirra, fara vel með sig og forðast að smita aðra. Þótt inflúensan sé yfirleitt væg er nauðsynlegt að hafa í huga að fólk með undirliggjandi sjúkdóma getur verið viðkvæmari fyrir henni en þeir sem hraustir eru og fengið alvarleg einkenni.

Vefur Landlæknis

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert