Kastað upp ofan í póstkassa

Nýlega var mótmælt fyrir utan heimili forstjóra Útlendingastofnunar.
Nýlega var mótmælt fyrir utan heimili forstjóra Útlendingastofnunar. Jakob Fannar Sigurðsson

Málningu var slett á hús Útlendingastofnunar við Skógarhlíð í nótt. Ekki er vitað hver eða hverjir voru þar að verki en við nánari athugun kom í ljós að einhver hafi jafnframt kastað upp ofan í póstkassa stofnunarinnar.

Engin skilaboð var að finna frá gerendum á staðnum og ekki er vitað hvert tilefni skemmdarverkanna var. Starfsmenn Reykjavíkurborgar hreinsuðu málninguna af í morgun.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert