Boðið upp á þyrluflug til Eyja

Margir ætla á Þjóðhátíð Vestmannaeyja.
Margir ætla á Þjóðhátíð Vestmannaeyja. mbl.is/Sigurgeir

Talsverður erill var hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í nótt í aðdraganda Þjóðhátíðar Vestmannaeyja. Einn gisti fangageymslur vegna slagsmála og fyrir liggur kæra manns sem var sleginn á veitingastað í nótt. Lagt var hald á lítilræði af fíkniefnum sem fannst á einstaklingi við reglubundið eftirlit.

Lögreglan í Vestmannaeyjum fær 17 lögregluþjóna til liðs við lögregluliðið í bænum vegna Þjóðhátíðarinnar og mun liðsstyrkurinn næstum þrefaldast við það. 

Búist er við mikilli aðsókn á þjóðhátíðina og mun vera upppantað með Herjólfi og Flugfélagi Íslands. Að auki verða Flugfélag Vestmannaeyja og þyrluþjónustan Norðurflug með ferðir milli Vestmannaeyja og Bakkaflugvallar.

Það er nýjung að Norðurflug verði með þyrluferðir milli lands og Eyja á átta sæta þyrlu. Hún byrjar að fljúga frá Bakka klukkan 13.00 í dag og eins verður flogið allan daginn á morgun. Síðan verður aftur þyrluflug á mánudaginn kemur.

Norðurflug verður með Dauphin 365 þyrlu í ferðum, en hún …
Norðurflug verður með Dauphin 365 þyrlu í ferðum, en hún tekur átta manns. nordurflug.is
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert