Kveikt í kömrum á Akureyri

Glatt logaði í kömrunum.
Glatt logaði í kömrunum. mbl.is

Kveikt var í kömrum við Borgarbíó á Akureyri um klukkan 06:30 í morgun. Um var að ræða sex plastkamra sem loguðu glatt og rauk mikið úr. Kömrunum varð ekki bjargað og brunnu þeir til grunna. Slökkvilið kom á vettvang og slökkti í rústunum.

Að sögn lögreglu skapaðist engin hætta af brunanum, enginn nýtti sér aðstöðuna þegar kveikt var í og engir bílar voru í grenndinni. Brennuvargarnir eru ófundnir.

Að öðri leyti fór allt vel fram á Akureyri að sögn lögreglu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert