Vegurinn yfir Lyngdalsheiði eins og þvottabretti

Frá Lyngdalsheiði.
Frá Lyngdalsheiði. mbl.is/Einar Falur

Skv. upplýsingum frá Vegagerðinni er vegurinn yfir Lyngdalsheiði mjög erfiður. Ekki tókst að hefla hann fyrir helgi og er hann því mjög holóttur. Mikið hefur rignt á svæðinu sem hefur ekki verið til að bæta ástandið.

Vegagerðinni hefur borist ein kvörtun frá ferðaþjónustuaðila, sem var að aka með farþega í rútu, um helgina.

Til stendur að hefla veginn á morgun.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert