Atvinnuleysi mælist 8%

Reuters

Atvinnuleysi í júlímánuði mældist 8%. Þetta jafngildir því að 13.756 manns hafi að jafnaði verið atvinnulausir í júlí. Atvinnuleysi minnkar því um 2,4% frá júní eða um 335 manns. Á sama tíma á árinu 2008 var atvinnuleysi 1,1%, eða 1.968 manns.

Atvinnuleysi er nú mest á Suðurnesjum 11,7% en minnst á Vestfjörðum 1,3%. Atvinnuleysi breytist lítið á höfuðborgarsvæðinu en minnkar um 6% á landsbyggðinni. Alls staðar dregur úr atvinnuleysi á landsbyggðinni. Hlutfallslega dregur mest úr atvinnuleysi á Vestfjörðum og Austurlandi (fer úr 1,8% í 1,3% á Vestfjörðum og úr 2,5% í 2% á Austurlandi).

Atvinnuleysi eykst um 2,2% meðal kvenna en minnkar um 5,4% meðal karla. Atvinnuleysið er 8,2% meðal karla og 7,6% meðal kvenna.

Spá 7,6-8,1% atvinnuleysi í ágúst

Yfirleitt batnar atvinnuástandið frá júlí til ágúst, m.a. vegna árstíðasveiflu.  Erfitt er að áætla atvinnuleysi um þessar mundir vegna mikillar óvissu í efnahagslífinu, en líklegt er að atvinnuleysið í ágúst 2009 verði á bilinu 7,6%-8,1%.  Í fyrra var atvinnuleysið 1,2% í ágúst, að því er fram kemur á vef Vinnumálastofnunar.

Alls voru 1.005 laus störf hjá vinnumiðlunum í lok júlí sem er fækkun um 96 frá því í mánuðinum áður þegar þau voru 1.101. Þess skal geta að mörg þessara starfa eru ýmis sérstök tímabundin störf og vinnumarkaðstengd úrræði.

Flestir útlendinga sem eru atvinnulausir störfuðu í byggingariðnaði

Alls voru 1.672 erlendir ríkisborgarar án atvinnu í lok júlí, þar af 1.016 Pólverjar eða um 61% þeirra útlendinga sem voru á skrá í lok júlí. Langflestir þeirra voru starfandi í byggingariðnaði eða 625 (um 37% allra erlendra ríkisborgara á atvinnuleysisskrá).

Samtals voru 2.426 af þeim sem voru skráðir atvinnulausir í lok júlí í hlutastörfum, þ.e. þeir sem eru í reglubundnum hlutastörfum eða með tilfallandi eða tímabundið starf á síðasta skráningardegi í júlí. Þetta eru um 16% af þeim sem voru skráðir atvinnulausir í lok júlí. Af þeim 2.426 sem voru í hlutastörfum í lok júlí eru 1.530 einstaklingar sem sóttu um atvinnuleysisbætur skv. lögum um minnkað starfshlutfall frá því í nóvember 2008. Þeim hefur fækkað frá fyrri mánuði, en þeir voru 1.675 í lok júní og 1.923 í lok maí.

Í júlí voru 902 sjálfstætt starfandi skráðir á atvinnuleysisskrá vegna samdráttar í rekstri skv. áður nefndum lögum. Þeim fækkaði frá júní þegar þeir voru 987.

Skýrsla Vinnumálastofnunar í heild

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert