Krafa um engar Icesave-greiðslur án hagvaxtar

Árni Þór Sigurðsson og Bjarkey Gunnarsdóttir, Vinstri grænum, sjást hér …
Árni Þór Sigurðsson og Bjarkey Gunnarsdóttir, Vinstri grænum, sjást hér á leið á fund fjárlaga-nefndar í gær. mbl.is/Eggert

Stjórnarandstöðuflokkarnir settu sig upp á móti breytingartillögum á frumvarpi vegna ríkisábyrgðar á lánum Tryggingasjóðs innistæðueigenda vegna Icesave-reikninga Landsbankans sem gerðu ráð fyrir að ekki mætti greiða meira árlega en sem næmi 3,5 prósent af landsframleiðslu.

Fimm manna nefnd lögfræðinga, undir stjórn Eiríks Tómassonar prófessors, setti saman tillögurnar um fyrirvara vegna ríkisábyrgðarinnar að ósk fjárlaganefndar í gær.

Stjórnarandstöðuflokkarnir töldu 3,5 prósent alltof hátt og vildu fulltrúar þeirra í fjárlaganefnd, einkum Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokksins, takmarka greiðslurnar við 2 til 2,2 prósent af landsframleiðslu. Þá vildu þeir einnig setja fyrirvara um að ef enginn hagvöxtur yrði þá yrði ekki greitt út til Hollendinga og Breta.

Hvergi haggað við auðlindum

Einnig var um það rætt á fundi fjárlaganefndar í gær, og innan þingflokkanna, að greiðslur vegna ríkisábyrgðarinnar yrðu alltaf í takt við þróun efnahagsmála hér á landi. Stjórnarandstaðan sótti fast að greiðslur vegna ríkisábyrgðarinnar yrðu í takt við þróun efnahagsmála og möguleiki væri á því að fella niður eftirstöðvar skulda.

Breytingartillögurnar á Icesave-frumvarpinu, sem voru til umræðu í fjárlaganefnd í gær fram á nótt og deilt var um í þingflokkum, eru birtar í Morgunblaðinu í dag. Í þeim kemur meðal annars fram að hvergi sé haggað við óskoruðum yfirráðum Íslands yfir auðlindum landsins og rétti handhafa íslensks ríkisvalds til að kveða á um auðlindanýtingu og eignarhaldi á náttúruauðlindum.

Þá segir að ekki hafi fengist úr því álitaefni skorið, „hvort aðildarríki EES-samningsins beri við kerfishrun á fjármálamarkaði ábyrgð gagnvart innistæðueigendum vegna lágmarkstryggingar[...] Fáist úr því skorið í máli um það eða sambærilegt úrlausnarverkefni að slík skuldbinding hvíli ekki á Íslandi eða öðrum ríkjum EES-samningsins“ skal möguleiki vera fyrir hendi á því að taka viðræður upp að nýju.

Fjárlaganefnd sat á fundi fram á nótt til að freista þess að leggja lokahönd á breytingartillögur við frumvarp ríkisstjórnariinnar um ríkisábyrgð vegna Icesave-samninganna. Nýr fundum um málið hefur verið boðaður klukkan 12 í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka