Tilboð Magma var á genginu 6,3

Orkuverið í Svartsengi.

Orkuverið í Svartsengi. mbl.is

Tilboð kanadíska fyrirtækisins Magma í hlut Orkuveitu Reykjavíkur í HS Orku er á genginu 6,3. Orkuveitan keypti hins vegar sinn hlut og hlut Hafnafjarðar á genginu 7. Þetta kemur fram í yfirlýsingu Sigrúnar Elsu Smáradóttur, fulltrúa Samfylkingarinnar í stjórn Orkuveitunnar.

Sigrún Elsa segir því ljóst, að Orkuveitan muni bera nokkurt fjárhagslegt tjón af þessum viðskiptum. Aðrir þættir hafi einnig áhrif á endanlegt virði tilboðsins, þá helst gengi krónunnar og álverð.

Hinsvegar sé ljóst, að ef tilboðinu verði ekki tekið muni Orkuveitan lokast inni með áhrifalausan minnihlutahlut í einkavæddu fyrirtæki. Þegar hafi verið tilkynnt að farið verði í hlutafjáraukningu þar sem miðað verður við gengið 4. Orkuveitan, sem handhafi 32% eignarhluta, mun ekki geta stöðvað það. Það er því ljóst að veruleg hætta sé á að hlutur Orkuveitunnar  í félaginu muni rýrna verulega kjósi Orkuveitan að eiga hlutinn áfram. Því sé spurning hvernig skaði Orkuveitunnar verði takmarkaður.

Sigrún Elsa sat hjá þegar meirihluti stjórnarinnar samþykkti fyrir helgi að fela stjórnarformanni og forstjóra að ganga til samninga við Magma Energy Sweden AB um kaup þess á eignarhluta Orkuveitu Reykjavíkur í HS Orku. Lilja Mósesdóttir, fulltrúi VG í stjórninni, greiddi atkvæði gegn sölunni.

Í tilkynningu frá Magma Energy Corp. í dag kemur fram, að fyrirtækið eigi í viðræðum um kaup á 32,32% eignarhluta Orkuveitunnar í HS Orku. Í júlí hafi Magma keypt 10,78% hlut í HS Orku og jafnframt fengið kauprétt á um það bil 5% í viðbót. Gangi þessi kaup öll eftir eignist Magma 43,1% hlut í HS Orku og kauprétt á 5% til viðbótar, samtals 48,1% hlut.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Hundrað þúsund meira í bensínskatt

19:04 Venjuleg fjölskylda greiðir ríkinu hundrað þúsund krónum meira á ári í bensínskatta nú en fyrir fjórum árum. Sá hluti kaupverðsins sem olíufélögin fá til sín hefur hækkað um 87% á sama tíma. Þetta kom fram í fréttum RÚV í kvöld. Meira »
Þór Saari og Margrét Tryggvadóttir, þingmenn Hreyfingarinnar, eru meðal þeirra sem stofna Breiðfylkinguna.

„Okkar dyr hafa alltaf staðið opnar“

18:57 „Mér finnst að það ætti að íhuga mjög vandlega. Okkar dyr hafa alltaf staðið opnar,“ segir Margrét Tryggvadóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, eftir fyrri stofnfund nýju hreyfingarinnar sem gengur undir vinnuheitinu Breiðfylkingin. Hún var spurð að því hvort ekki kæmi til greina að nýju stjórnmálaöflin sem fram hafa komið að undanförnu gætu boðið fram saman. Meira »

„Þjóðin valdi okkur“

Blár Ópal í Hörpu í gær. Hljómsveitina skipa þeir Franz Ploder Ottósson, Pétur Finnbogason, Agnar ...
18:31 „Þjóðin valdi okkur, það er mjög gaman að vita af öllum þessum stuðningi almennings,“ sagði Franz Ploder Ottósson, einn fjórmenninganna í Bláum ópal, eftir að fréttir bárust um að lagið þeirra, Stattu upp, hefði fengið flest atkvæði í símakosningunni í Söngvakeppni Sjónvarpsins í gær. Meira »

Gæslan bíður eftir skýrslu

Þór á siglingu.
17:56 Sérfræðingar á vegum Rolls Royce reyna nú að finna orsök bilunar í nýju varðskipi Landhelgisgæslu Íslands sem kom til hafnar í Bergen í Noregi sl. miðvikudagskvöld. Meira »

Ók á ljósastaur

17:29 Umferðaróhapp varð á Laugarnesvegi um kl. 14 í dag. Lögreglan fór á staðinn en ökumaður bifreiðarinnar hafði ekið á ljósastaur. Enginn slasaðist en bíllinn er skemmdur og óökuhæfur. Var hann fjarlægður af slysstað með kranabifreið. Meira »

Blár ópal fékk flest atkvæði

Kristmundur Axel Kristmundsson, syngur með Bláum ópal í Hörpu í gærkvöldi.
18:16 Lagið Stattu upp í flutningi strákasveitarinnar Blás ópals fékk flest atkvæði í símakosningu Söngvakeppni Sjónvarpsins í gærkvöldi. Lagið fékk 700 fleiri atkvæði en lagið sem vann, Mundu eftir mér. Meira »

Vilja nýtt kúakyn til Íslands

Arnar Bjarni Eiríksson, sem rekur eitt stærsta kúabú landsins í Gunnbjarnarholti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
17:49 Bændurnir í Gunnbjarnarholti og á Skáldabúðum vilja flytja inn nýtt kúakyn til landsins sem allra fyrst. Arnar Bjarni Eiríksson, sem rekur bæði búin ásamt konu sinni Berglindi Bjarnadóttur, segir nýtt kúakyn vera forsendu þess að kúabændur geti þróað mjólkurframleiðslu sína. Meira »

Hundur fastur í neti

Hundur af border collie-kyni.
17:13 Lögreglan fékk í morgun tilkynningu um hund sem var fastur í netadræsum við Ægisgarð. Lögregla og tækjabíll frá slökkviliði fór á vettvang. Búið var að bjarga hundinum úr netunum og var hann frekar þjakaður en glaður björguninni. Meira »

Hjartað í tónlist en höfuðið í lækningum

Magni Ásgeirsson söng lag Sveins Rúnar, Hugarró, af mikilli innlifun.
16:12 Síðustu vikurnar hefur lagahöfundurinn Sveinn Rúnar Sigurðsson, sem átti tvö lög í úrslitakeppni Söngvakeppni sjónvarpsins í gærkvöldi, starfað við lækningar á Heilsugæslunni í Árbæ á daginn og sinnt undirbúningi Evróvisjón á kvöldin. Meira »

Nálgast 30.000 undirskriftir

Skorað er á forsetann að gefa áfram kost á sér til embættis.
15:19 Undirskriftum fjölgar enn á vefsíðunni Áskorun til forseta þar sem skorað er á Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, að gefa áfram kost á sér til embættis í komandi forsetakosningum. Meira »

Mikið annríki á Læknavaktinni

15:33 Mikið annríki hefur ríkt á Læknavaktinni um helgina, og nánast stöðugur straumur fólks. Sökum þessa hefur biðtími lengst og kalla þurfti út lækna bæði í gær og í dag. Upplýsingar um hvað helst er að hrjá landann liggja þó ekki fyrir. Meira »

Kjörin formaður Sambands ungra framsóknarmanna

Ásta Hlín Magnúsdóttir
15:18 Ásta Hlín Magnúsdóttir var í dag kjörin nýr formaður Sambands ungra framsóknarmanna. Ásta Hlín fékk 32 atkvæði eða 53%. Mótframbjóðandi hennar, Ragnar Stefán Rögnvaldsson, fékk 28 atkvæði eða 47%. Meira »

Bæta við strætóferðum á Suðurlandi

Mjóddin er upphafs- og endastaður Suðurlandsstrætósins.
15:10 Frá og með deginum í dag verða gerðar nokkrar breytingar á akstri Strætó bs. á Suðurlandi. M.a. verður bætt við hádegisferð frá Reykjavík á Selfoss og til baka til Reykjavíkur, tekinn upp akstur í Reykholt og bætt við ferð frá Vík til Hafnar á þriðjudögum. Meira »

Nefbrotinn eftir árás

Maðurinn var fluttur á slysadeild með sjúkrabíl.
15:04 Karlmaður var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild Landspítala snemma í morgun eftir líkamsárás í miðborg Reykjavíkur. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu sagðist maðurinn hafa orðið fyrir árás tveggja manna sem hann kunni ekki deili á, ekki hefur tekist að hafa uppi á þeim. Maðurinn er talinn nefbrotinn. Meira »

Börnin uppgötva undraheima Legó

Börnin skemmtu sér hið besta við að búa til alls kyns byggingar úr kubbunum.
14:05 Gríðarleg umferð hefur verið í Ráðhúsi Reykjavíkurborgar um helgina en þar er sýningin Undraheimar Legó sett upp. Yngstu kynslóðinni gefst þar kostur á að gleyma sér framkvæmdum með fjölmarga Legó-kubba. Meira »

Gæði röntgenmynda margfaldast

Lesið úr röntgenmyndum á Landspítalanum í Fossvogi. Mynd úr safni.
15:06 Tekinn hefur verið í notkun stafrænn búnaður til framköllunar á röntgenmyndum á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Hvammstanga. Þessi nýju tæki koma í stað gamalla tækja sem voru úr sér gengin og nær ónýt. Meira »

17 kýr mjólkuðu yfir 10 þúsund kíló

14:50 Þær voru duglegri að mjólka í fyrra, kýrnar í Eyjafirði og Suður-Þingeyjarsýslu, en árið á undan. Í fyrra mjólkuðu sautján kýr yfir 10 þúsund kíló en árið 2010 voru þær aðeins fimm. Meira »

Evrópusambandið kynnir sig sjálft

Fánar Evrópusambandsins fyrir utan höfuðstöðvar framkvæmdastjórnar sambandsins í Brussel.
13:35 Sérstök upplýsingaskrifstofa um Evrópumál, sem fengið hefur heitið Evrópustofa, var opnuð við Suðurgötu í Reykjavík í síðasta mánuði en markmið hennar er að miðla hlutlægum upplýsingum til Íslendinga um Evrópusambandið og kosti og galla þess fyrir Ísland að ganga í sambandið. Meira »

Innlend málefni

Svipaðar fréttir

Finnur.is
"Gig" um helgina?
Notuð hljóðfæri og hljómsveitargræjur. Skoðaðu úrvalið reglulega. Smelltu á www....
DÖMUSTÍGVÉL
Teg. 4141 - Vönduð dömustígvél úr leðri, fóðruð og á lágum hæl. Stærðir 36 - 40,...
Bókhald - ársreikningar - skattframtöl
VSK uppgjör, skattframtöl, launaútreikningar, erfðarfjárskýrslur, leigusamningar...
Kristall ljósakrónur ÚTSALA
Glæsilegar kristalsljósakrónur, veggljós, matar og kaffistell, og skartgripir ti...
 
Sýslumaðurinn á selfossi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Study medicine and dentistry

Study Medicine, Dentistry and physiothe...
12755 klapparstígur
Tilboð - útboð
ÚTBOÐ Reykjavíkurborg Innkaupaskri...
Bifreiðauppboð
Nauðungarsala
Sýslumaðurinn í Kópavogi Dalvegi 18, ...