Dregur úr vindi í kvöld

Veðurstofan spáir austan 8-15 metrum á sekúndu sunnan- og suðvestanlands í dag, hvassari við suðurströndina. Skýjað verður og dálítil væta öðru hverju um sunnanvert landið, en þurrt að mestu norðantil fram yfir hádegi. Í kvöld dregur úr vindi, einkum sunnantil. Hiti verður 7 til 15 stig, hlýjast um landið suðvestanvert.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert